|
21.04.2009 15:58:57 / Þórunn
Hæ skvísur. Ég er á leið suður helgina 7-11 mai. verð á naglanámseiði fös.lau og sunn til kl 18 væri allveg til í að hitta ykkur sem flestar (helst allar) það er orðið svo langt síðan við höfum hisst kv Þórunn
»
16.11.2008 20:57:23 / Lotta
Hæ stelpur!
Nú er allt og langt síðan við hittumst síðast. Við Erla vorum að ræða saman og erum búnar að ákveða hitting á efri hæðinni á Ólíver, föstudaginn 5. desember klukkan 20 - 20.30. Þá geta þær borðað sem vilja. Vonandi komist þið sem flestar, hlakka geggjað mikið til að sjá ykkur.
Kveðja Lotta og Erla
»
12.10.2008 12:54:40 / Magga
Hæ skvísulísur 
Vildir bara láta ykkur vita að Inga er búin að eiga.
Prinsinn kom þann 5. október og var 14 merkur og 50 cm. ALGJÖR SNÚLLI 
kv magga.
»
01.09.2008 21:07:05 / kiddy
»
18.08.2008 22:36:01 / systa
Hæ hæ Stelpur
Langaði bara að deila því með ykkur að Fríða var að eignast stelpu í dag ...18 merkur og 56 cm ...þokkalega stór gella ... Inga þetta er óléttan sem ég sagði frá fyrir löngu síðan :-)
Annars er bara allt gott að frétta af mér, snyrtistofan gengur rosalega vel, mikil vinna en virkilega skemmtileg :-)
Skrifa meira síðar :-)
Bestu kveðjur frá Akureyri
Systa
»
21.06.2008 23:33:15 / Lotta
Eru allir hættir að kíkja hingað inn og hvað þá skrifa? Af mér er allavega það að frétta að við Bingi gengum í það heilaga þann 7. júní. Fullkominn dagur, í alla staði. Svo nú getið þið kallað mig Frú Lovísu, hehehehehe. Ég er byrjuð að vinna aftur, reyndar bara í tvær vikur og svo lokar leikskólinn í 4 vikur. Ragnar Ingi er búinn að vera í aðlögun þar og gengur rosalega vel. Svo er ég að bíða eftir svari um það hvort ég sé komin inn í leikskólakennarann í fjarnámi í haust. Við Ragnar Ingi ætlum til Noregs til mömmu og pabba 19.- 29. júlí, Bingi ætlar að vera heima og vinna. En hvað er að frétta af ykkur??
»
30.05.2008 00:13:21 / Lotta
Hjartanlega til hamingju með litlu perluna Rósa mín! Hún er ekkert smá falleg, trúi því að þið séuð að springa úr stolti  Hlakka til að fylgjast með á síðunni þinni. Kveðja Lotta
»
19.05.2008 04:50:39 / Rósa
Blessaðar stúlkur... Var að spá í að reyna að helda þessari síðu e-h gangandi.. hvernig líst ykkur á það. En jæja eins og þið sjáið kannski þá er klukkan að ganga 5 að nóttu til. JÁ maður er bara hættur að geta sofið   Er orðin svona nett pirruð á því hehe en þetta styttist óðum. Er skráð 5 júní en verð núna sett í keisara 29 maí eða viku fyrr. Þetta er svo mikil prinsessa sem ég er að fá að hún vill ekki snúa sér. Situr bara núna fastskorðuð með rassinn í grindinni. Eins og mamma mín sagði " prinsessur sem fara á hvolf missa kórónuna sína" hehe.... Annars er ég bara komin í fæðingarorlof og bara ligg í leti,,, er búin að gera allt nema þvo fötinn og kaupa rúm. Ætla að gera það á morgun...úúu hlakka til´  Hvað er annars að frétta af ykkur??? það varð ekkert af þessum hitting svo það vantar update af ykkur.... Setti inn barnalandsíðunna mína hér til hliðar ef þið viljið fylgjast með
»
17.03.2008 19:30:16 / Erna S
Á ekkert að verða úr þessum hittingi eða hvað??  Eins og staðan er þá miðum við á fermingarveislurnar, hver er með elsta barnið??? En eigum við ekki að reyna þetta fljótlega??
»
04.03.2008 13:23:39 / Bubba
Jæja girls hvað varð um hittinginn???  Hvernig væri að ákveða dag og þær koma sem koma. T.d að hafa hitting á laugardegi 8 eða 15 mars ????  Hlakka til að hitta ykkur snyrtipíur. Bubba
»
12.02.2008 21:49:34 / Lotta
Hjartanlega til hamingju með gullfallega prinsinn Erla! Hlakka til að knúsa hann. Hvíldu þig vel... Kveðja Lotta
»
31.01.2008 23:51:15 / Lotta
Er ekkert að frétta af okkur ?? Hvað er framundan hjá ykkur?? Erla á vona á þriðja drengnum um miðjan febrúar og Rósa gengur með litla prinsessu.. til hamingju stelpur!! Við Sigga hittumst nánast á hverjum degi, enda ekki nema 15 skref milli húsa, hehe. Una Dís hennar er 7 mánaða og Ragnar Ingi minn er að verða 9 mánaða. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Þau eru sko bara yndisleg saman  Ég er að fara í stelpuferð til Köpen frá 14. til 17. febrúar. Það verður skrítið að fara frá Ragnari Inga en mikið rosalega hefur maður gott af því!! Svo erum við fjölskyldan að fara til Spánar í byrjun mars.. sem sagt nóg að gera. Hvað með ykkur ?? Ekkert að frétta ?? Adios Lotta
»
02.01.2008 17:22:24 / Rósa
Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár skvísur!!
»
29.11.2007 00:02:23 / Anna
»
27.11.2007 01:04:47 / systa
Hæ hæ Stelpur
Ég er að fara að opna snyrtistofu á Akureyri 1 desember og að því tilefni verður opið hús að Hafnarstæti 19 milli klukkan 14-17. Það væri þvílík gaman að fá ykkur í heimsókn.
Snyrtistofan er í 100 ára gömlu, sögufrægu friðuðu húsi og hefur það verið notað í ýmisslegt, svo sem eins og sláturhús, pakkhús, heildsölur, geymslur, hermenn tóku það í seinni heimsstyrjöldinni og notuð það sem birgðageymslur svo eitthvað sé nefnt og nú loks snyrtistofa.
Sjáumst hressar d
Kveðja Systa
P.S: SNYRTISTOFAN HEITIR LIND
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|